Meistaraprófsvörn - Geta siglingaferðaþjónusta og hafrannsóknir verið gagnkvæmt gagnlegar?

Á næstunni fara fram varnir meistaranema við Háskólasetur Vestfjarða. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og áhugaverð og eru nemendurnir frá bæði sjávarbyggðarfræði og haf-og strandsvæðastjórnun. Varnirnar eru öllum aðgengilegar í gegnum hlekki sem finna má hér fyrir neðan en einnig er öllum velkomið að mæta á varnirnar sem fram fara í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði.

Nemandi: Hugo Vancraenenbroeck
Titill ritgerðar: Geta siglingaferðaþjónusta og hafrannsóknir verið gagnkvæmt gagnlegar? Tilviksrannsókn á Norðurheimskautum með sérstakri áherslu á Ísland og Norður-Noreg
Námsleið: Haf- og strandsvæðastjórnun

Hlekkur á Zoom