Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Fréttir

Vettvangsferð í fiskeldi
Mánudaginn 25. febrúar fóru meistaranemar sem tóku valnámskeið um fiskeldi í vettvangsferð til að skoða sjókvíar fyrirtækisins HG í Álftafirði. Hópnum var skipt upp í tvennt og tóku Barði Ingibjartsson og Eiríkur Ragnarsson, starfsmenn fiskeldis HG, á móti hópunum í Súðavík og fylgdi þeim sjóleiðina að kvíum fyrirtækisins..........
Meira

Sjávartengd nýsköpun

Hagnýtt meistaranám í sjávartengdri nýsköpun er nýstárlegt nám í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Nýsköpunar-miðstöð Íslands, þar sem nemendur læra að skapa sér atvinnutækifæri. Sjávartengd nýsköpun er vítt skilgreind, enda á hún sér stað í fjölmörgum greinum: Sjávarútvegi og eldi, matvælaframleiðslu, í tæknigeiranum og orkuframleiðslu, en ekki síður í ferðamennsku, menningu og fleiru.

Námið gefur nemendum innsýn í málefni hafs og stranda og í eðli og skilyrði nýsköpunar og reksturs örfyrirtækja. Hver og einn nemandi mótar einstaklingsmiðaða námsáætlun sem tekur mið af fagtengdum námskeiðum, rekstrartengdum nám-skeiðum og þróun nýsköpunarhugmyndar viðkomandi. Nemendur vinna nýsköpunarverkefni sitt í nánu samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og vestfirskt atvinnulíf. Þar sem um einstaklingsmiðað nám er að ræða er fjöldi nemenda takmarkaður.

Að námi loknu eru nemendur vel í stakk búnir til að koma sínum eigin hugmyndum í framkvæmd, hvort sem það er með stofnun fyrirtækis eða innan starfandi fyrirtækis, en sú þjálfun sem nemendur öðlast í náminu nýtist einnig víða annarsstaðar í atvinnulífinu, t.d. í allri verkefnisstjórnun. Námið er því góður undirbúningur fyrir síbreytilegan vinnu-markað sem gerir kröfur til sjálfstæðra vinnubragða og hugmyndaauðgi.

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón