Lífiđ á Ísafirđi
Ísafjörður er líflegur og fallegur bær með öflugu menningar- og íþróttalífi. Örstutt í ósnortna náttúru Hornstranda og Jökulfjarða. Frábærar aðstæður til iðkunar vetraríþrótta og fjallamennsku.
Öll þjónusta í Ísafjarðarbæ er eins og best verður á kosið, sjúkrahús, bókasafn, tónlistarskóli, framhaldsskóli og grunn- og leikskólar. Í miðbænum eru fjölbreyttar verslanir, kaffihús og veitingastaðir.
Framfærslukostnaður stúdenta á Ísafirði er umtalsvert lægri en á höfuðborgarsvæðinu, enda húsnæðisverð í kringum helmingi lægra.
Starfsmenn Háskólaseturs aðstoða nemendur við húsnæðisleit og annað sem á þarf að halda til að komast fljótt og örugglega inn í samfélagið.
Nánari upplýsingar um þjónustu bæjarins má nálgast á vef Ísafjarðarbæjar.