Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Fréttir

Gestafyrirlestur um skipulagsmál
Dirk Werle frá umhverfisrannsóknarstofnuninni Aerde Environmental Resarch í Halifax, Nova Scotia heldur gestafyrirlestur í námskeiđinu Principles of Planning miđvikudaginn 8. maí kl. 13:-15:00. Fyrirlestur Dirk Werle ber titilinn „Planning tools to support coastal hazard response and management - Using Earth observation satellites for hurrica......
Meira

Strandsvćđastjórnun

Haf- og strandsvæðastjórnun er krefjandi og metnaðarfullt meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun sem Háskólasetur Vestfjarða býður upp á í samvinnu við Háskólann á Akureyri.

 

Námið er þverfaglegt og býr nemendur undir fjölbreytt og spennandi störf í einkageiranum svo og hjá hinu opinbera. Verkefnastjórnun á sviði auðlindanýtingar og skipulagsáætlana, umhverfismat, ráðgjafastörf, kennsla og rannsóknarvinna eru meðal starfa sem meistarnámið í haf- og strandsvæðastjónun býr nemendur undir. Námið er alþjóðlegt og kennt á ensku og mun nemenda- og kennarahópurinn samanstanda af innlendum jafnt sem erlendum einstaklingum.

 

Meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun leiðir saman fólk með ólíkan bakgrunn sem deilir með sér reynslu, þekkingu og hugmyndum í litlu, frjóu og skapandi háskólaumhverfi með það að markmiði að finna leiðir til sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Verið velkomin í samfélagið okkar og í hóp sérfræðinga á sviði nýtingar og stjórnunar náttúruauðlinda.

Háskólasamfélagiđ

„Viðfangsefni námsins hæfa Vestfjörðum frábærlega! Hingað kemur ævintýra-gjarnt, klárt og svipað þenkjandi fólk víðsvegar að úr heiminum. Ég elska þverfræðileika námsins auk þess sem við fáum mikinn tíma „einn á einn" með kennurunum þegar þeir eru hér. Ég tengist Háskólasetrinu mun sterkari böndum en fyrsta háskólanum mínum."
Ryan O´Connell, Kanda CMM nemi 2010-2011
Vefumsjón